Monday, April 04, 2005

Á maður frekar að blogga hérna megin???

Ég veit ekki af hverju en mér finnst bloggfærslurnar mínar miklu skemmtilegri hérna megin! Er maður pínu klikk eða hvað? Ég er lasin heima og það er ekkert ægilega skemmtilegt! Ætla mér samt í vinnuna á morgun enda er ég svo ómissandi að það fer allt í rugl ef ég er ekki á staðnum!! Neh bara djók! Anna Sóley snillingurinn minn sér um allt á meðan :) Svo er nú farið að styttast ótrúlega í íbúðina mína!! 27 dagar! Og dagarnir líða hratt skal ég segja ykkur! svo er suðuferð á miðvikudag til fimmtudags, eins og sagði áðan þá er ég alveg ótrúlega mikilvæg í fyrirtækinu og það er verið að senda mig suður á grænmetisnámskeið! Anna Sóleyin kemur líka með .. Meira hvað við erum mikið VIP ;) Múhahahaha :) Jæja ég er að deyja í höfðinu en maginn er að skána! Hafið það gott og það fyndna er að það veit enginn að ég er að blogga hérna megin.... HEHE! Eyglóin