Friday, February 04, 2005

Hætt hér!!!

Jæja ég ákvað að feta í fótspor Örnunnar minnar og færa mig.. Var reyndar löngu búin að stofna mig inná blog.central en kunni ekki að signa mig inn þar og gera e-ð! Núna kann ég það og ætla framvegis að skrifa þar inn! Ýkt skemmtilegt! Takk fyrir að lesa mig alltaf og sjáumst á blog.central.is/gloin

Kveðja íbúðareigandinn ;)

Tuesday, February 01, 2005

Ég er orðin íbúðareigandi!!!!!!!!!!! :)

Loksins! Ég fór í hádeginu og skrifaði undir pappírana! Hryllilega er þetta spennandi, það var sett 7,2 á hana, ég bauð 6,7 og fékk gagntilboð uppá 7,0 sem ég tók strax enda tjáði fasteignasalinn mér það að þau myndu ekki fara undir 7! Hún er mikið gerð upp og þvílíkt kósý :) Þetta er lýsingin af netinu : Skarðshlíð l3 J: Mikið endurbyggð og falleg 2ja herbergja íbúð á 3ju hæð. Á forstofu eru flísar og fataskápur, flísar á holi og parket á stofu og þar farið út á svalir til suðurs. Í eldhúsi er nýleg sprautulökkuð innrétting flísar á gólfi. Á baðherbergi eru flísar á gólfi og á veggjum að hluta, baðkar og aðstaða fyrir þvottavél á baði, nýleg sprautulökkuð innrétting þar. Í svefnherberginu er parket á gólfi og fataskápur. :) :) :) Hún er 53,4 fm2 og svo eru suðursvalir og alles þannig að á sumrin verð ég súperbrún :) Ég fæ afhent í síðasta lagi 1.maí og ætla ég að nota þann tíma í að losa mig við bílinn (enda stutt í vinnu þegar ég verð flutt) og safna mér pening :) Það eina sem ég "þarf" að gera er að mála stofuna en hún er ljósblá, sem er ekki alveg minn litur! Svo er ég komin með sófasett! Fæ gamla settið frá Ellu Gittu og Katli sem Íris og Karlott fengu þegar þau giftu sig! Mjög fínt sett :) Eldhúsborð fæ ég lánað, hvítt og mjög fínt, Doris tengdamamma Örnu ætlar að vera svo góð að lána mér það :) Svo á ég svo frábæra ömmu að ég fæ ísskáp sem hún á :) Allir þvílíkt góðir við mig :) Ég hlakka endalaust til að flytja inn og fara að koma mér fyrir! Skemmtilegast í heiminum held ég.. Svo er skylda fyrir alla sem koma norður eftir 1.maí að heimsækja mig! OK? Jæja æltaði bara að segja frá flottustu fréttunum! Reynið að hafa það eins brjálæðislega gott og ég ;) Lov U all.. Ykkar Eygló ótrúlega hamingjusama ;) ;)