Monday, October 20, 2008

Erla Rakel Björnsdóttir....


.... kom í heiminn 5.október síðastliðinn klukkan 9:17 :) Hún er því orðin 15 daga í dag! Hún braggast svakalega vel og þessi mynd er tekin af henni þegar hún var 8 daga :) Hún drekkur og sefur og gerir í bleyjuna sína :) Það er algjört æði að vera mamma og sjá um hana og allt við hana er alveg dásamlegt! Við Bjössi erum alveg að elska þetta nýja hlutverk :):)
Jæja þá er tilkynningarskyldunni lokið en ég býst ekki við því að vera dugleg að blogga en ég er mjöög dugleg að setja inn myndir af Erlu Rakel á barnalandssíðuna hennar :)
Kveð í bili..
Stolta mamman :):)

4 comments:

Eygló said...
This comment has been removed by the author.
Erling.... said...

Enda er hún algjört yndigull stúlkan. Sver sig í ættina, dökkhærð og falleg.
Elska ykkur öll.
Pabbi

Anonymous said...

Til hamingju með frumburðinn.
(þekki ykkur ekki neitt en er vinkona Ellu Gittu og rambaði þannig inn á síðuna ykkar)

Falleg stúlka, og fallegt nafn sem að hæfir henni vel.

Gangi ykkur vel og njótið þess að vera foreldrar.

Kveðja Elín

Erla said...

Elsku Eyglóin mín, til hamingju með afmælisdaginn þinn. Vona að hann hafi verið frábær og skemmtilegur. Guð blessi þig ríkulega og veiti þér það sem hjarta þitt þráir. Elska þig endalaust. Mamman