Saturday, September 23, 2006

Gæsun! (Gúlp)

Jæja þá eru bara 2 vikur í stóra daginn og ég verð spenntari með hverjum deginum sem líður! Allt að gerast og allt að vera tilbúið og allt einhvern veginn að ganga upp :)

EN í dag verð ég gæsuð.... Systur mínar og einhverjar fleiri sem ég fæ ekki að vita af sækja mig klukkan 16... Það er mikið búið að hræða mig um að ég verði látin fara í búning og gera mig af fífli fyrir framan fólk og e-ð íþeim dúr, alveg ekta ég þar sem ég er einstaklega athyglissjúk... *Hóst*
Arna talaði reyndar held ég af sér um daginn þegar það valt upp úr henni "það er ekki eins og það loki einhvern tímann á Esjunni" sagt vegna þess að þær eru vinna til 15 í dag :) Þannig að ég hef vart hugsað um annað síðustu daga en þessa stund sem nálgast nú óðfluga!!! Hrund sagðist ætla að rúlla mér niður Esjuna í tunnu ;) Við sjáum til með það :) Þetta verður samt örugglega æðislega skemmtilegur dagur og ég skal setja inn myndir ef ég næ að fá hjálp við það!

Jæja klukkan er 15:57 svo að ég ætla að fara að hendas tí skóna, ég fer sko dúðuð, in case ef það verður svo Esjan sem mér verður rúllað niður ;)

Þangað til næst :)

Eygló Gæs :) :) :)

2 comments:

Íris said...

Takk fyrir daginn!!
Þetta var alveg meiriháttar gaman ;)
Sofðu svo vel í fyrramálið.

Anonymous said...

Vonandi var þetta alveg rosalega gaman hjá þér,og vá hvað það er orðið stutt þangað til að brúðkaupið verður:) Kveðja litla bumban