Saturday, March 03, 2007

Afmæli, dúnsæng og Pizza Hut :)


Ég og Arna áttum afmæli í gær :) Uppáhalds dagurinn minn á árinu má eiginlega segja! Ég er svo mikið afmælisbarn og var alveg búin að telja niður í afmælið!! Hehe.. Takk allir sem mundu eftir deginum og glöddu mig með sms-um og kommentum á blogginu mínu :) Eftir vinnu kom Arna með yndin sín þrjú og svo kom mamma með stelpurnar hennar Írisar þar sem hún er í Brussel, loks komu svo Hrund og Thea og svo pabbi :) Gaman að hitta alla svona á sjálfan afmælisdaginn :) Ætlum svo að halda mini afmæli á sunnudaginn og ætla ég því að baka í dag og vera voðalega myndarleg ;) Ég fékk einn pakka í gær og það var frá honum Bjössa mínum, og viti menn, ég fékk alveg æðislega dúsæng, akkúrat það sem ég hafði óskað mér, svo þegar ég tók sængina úr pakkningunni þá duttu út tvær syrpur, ég er áskrifandi af þeim en vantaði inní nokkrar svo að hann gaf mér 2 inní það :) ÆÐISLEG gjöf og kortið var svo fallegt, ég felldi næstum tár!! Hehe.. Takk fyrir mig elskan mín ;-*
Við fórum svo á Pizza Hut um kvöldið, fengum okkur ostafylltar brauðstangir og pizzu :) Slúrp, þvílíkt góðar pizzur þarna, komum við á videoleigu á heimleiðinni og leigðum The Guardian, rosalega góð mynd, en fyndið þegar ég sagði kennitöluna mína til að leigja þá sagði afgreiðslugaurinn alveg "hey, áttu afmæli í dag?" ég játti því auðvitað og fékk hamingjuósk að launum :) Gaman að því, aldrei lent í þessu áður en ég óska alltaf fólki sem ég afgreiði til hamingju ef ég sé að það á afmæli, fólk verður alltaf jafn hissa að ég taki eftir því á kortinu ;)
Jæja við hjónin ætlum að fara í Bónus og versla hálfa búðina, og svo aðeins að útrétta, oh ég elska fríhelgar, svo hlakka ég alveg rooosalega til að fá pakka á morgun :)
Njótið helgarinnar í botn og verið blessuð :)
Ykkar Eygló afmælisbarn með meiru ;)

4 comments:

Anonymous said...

Elsku Eygló mín. Ég gleymdi ekki afmælinu þínu, en steingleymdi að senda smsið :(

En hér er afmæliskveðjan komin.
vona að þið hafið haft það ofurgott á afmælinu ykkar.
Knús og kossar

Sólveig

Anonymous said...

á maður aö skilja það sem svo að manni sé ekki boðið í míni afmælið?

kveðja Kiddi Klettur

Anonymous said...

Takk fyrir helgina elskan mín og vonandi nýtur þú afmælisgafarinnar sem ég gaf þér ;) Elska þig gullið mitt og til hamingju með 26 árin.

Ástarkveðja
Þinn eiginmaður :-*

Anonymous said...

Til hamingju með afmælið Skvísa :)

Kveðja Kolbrún ofurgella