Friday, April 18, 2008

Dekur :)

Ég fór í dekur áðan á snyrtistofu og mikið var það svakalega notalegt :) Bjössi gaf mér gjafabréf í andlitsbað og parafin maska fyrir hendur í brúðkaupsafmælisgjöf og ég var loksins að nýta mér það í dag :) Maður verður hálfdasaður eftir á. En æðislegt engu að síður!

Ég hef nú ekki bloggað í háa herrans tíð eða bráðum mánuð, ég er voðalega löt orðin við þessa síðu en ég er dugleg að uppfæra krílasíðuna okkar :) Meðgangan gengur annars bara mjög vel! Ég er komin 17 vikur á morgun og mér finnst tíminn fljúga!!! Alveg með ólíkindum að það geti komið helgi annan hvern dag (eða svona næstum) Öll ógleði löngu farin, það eina sem ég finn er að ég er voðalega þreytt og lúin á kvöldin :$ Ég þurfti að berjast við að sofna ekki í gær í sófanum og klukkan var ekki nema 19:45, ég hringdi svo í Örnu og spurði hana (meðgöngusnillinginn) hvort þetta væri eðlilegt! Hún tjáði mér svo vera! Ég nefnilega sofnaði svo auðvitað í sófanum!!

Vinnan gengur vel og það er einmitt opið hús á morgun og það verður eflaust skemmtilegt! Annars er nú lítið planað þessa helgi nema taka til og þrífa og hafa það gott :)

Ætla að láta þetta nægja í bili!

Njótið helgarinnar og lífsins elsku vinir :)

Bumbukveðjur Eygló :):):):)

16 comments:

Íris said...

Gott hjá þér að láta dekra við þig ;) Maður á það alltaf skilið á meðgöngunni ;)
Hlakka til að sjá þig, svoldið langt síðan síðast ;)
Your sis
Íris

Íris said...

Jæja, kominn meira en mánuður síðan þú bloggaðir síðast! Kominn tími á nýja færslu ;)

Íris said...

Jæja, Eygló mín...

Íris said...

...á ekkert að fara...

Íris said...

...að blogga meira???

Íris said...

Er bara að athuga...

Íris said...

...hvort mörg komment geri...

Íris said...

...herslumuninn :)

Íris said...

Þín systir

Íris said...

Íris hehehhehee

Íris said...

Vá, hvað þér á eftir að bregða þegar ...

Íris said...

...þú sérð að það séu komin 12 komment :) hahhahaa

Íris said...

Höfðu kommentin sem sagt engin áhrif???

Eygló said...

jú ég ætlaði að blogga á sunnudaginn en það tók endalausan tíma að hlaða inn myndum svo að ég á eftir að gera aðra tilraun ;)

Anonymous said...

Hæ sæta mín. Farðu nú að blogga;) Ég veit þetta kemur í hörðustu... Þú ert FRÁBÆR út í gegn, Arnan

Íris said...

Nú fer maður bara að hætta að kíkja sko....