Tuesday, September 28, 2004

Hæ hó... .is.. HEHE ;)

Hæ allir sem lesa bloggið mitt ;) Ótrúlega lítið sem gerðist í dag, var að vinna 8-18 og þetta var massa skemmtilegur dagur, var í einhverju ægilegu spassakasti og hló eins og svín að einhveju sem var kannski ekkert svo fyndið, var líka svona í gær en þá sagði ég "voru vökvin eitthvað blómuð um helgina..." Ætlaði auðvitað að segja voru BLÓMIN e-ð vökvuð.... Og ég drapst úr hlátri af minni alkunnu snilld.. Hinum fannst þetta ekki eins fyndið og mér en hlógu samt. Ég borðaði bara fitness í dag í vinnunni, ein skál kl 10, önnur kl 12 og þriðja kl 15! Fjölbreytta fæðan... og auðvitað undanrenna með... jú drakk pepsí max í hádeginu með... Það hlýtur eiginlega að renna pepsi max í æðum mér, neh segi svona... En vitiði gaman...... Ég er að fara í Baugasel á laugardaginn eftir vinnu, ætlum fara unglingarnir, (þau okkar sem fara ekki á Nordica) þetta er lítill "notalegur" skáli, sem er kannski ekki svo notalegur því það er engin kynding þar heldur hitað upp með gasi, (minnir mig) man bara að síðast þegar ég fór þangað þá var mér sagt að við værum að fara í sumarbústað, og ég mætti í peysu og kvartbuxum.. En þá áttum við eftir að villast í blindbyl, það var brjáluð snjókoma og maður labbaði í snjó upp að hnjám... ég hélt í alvöru þá að ég yrði úti! Man líka að ég dó næstum úr kulda um nóttina, mín var samt með dúnsæng og í flónelnáttfötum... En þetta var í febrúar = MJÖG kalt.. Brrrr.. En við ætlum að fara og hafa gaman, ég ætla meira að segja að spila á gítar fyrir nærstadda... SVO mætið öll :) Sleppi bingóinu, vinn hvort eð er aldrei neitt... Hef ekkert meira að segja... Hafið það bara langskemmtilegast og farið öll í langan góðan göngutúr og hlustið á New Song með Natali Grant.. Endalaust flott lag, eða sitjið inni undir sæng með swiss miss í bolla og hlustið á vonda veðrið úti (sem reyndar er ekki) Lov u all.. Ykkar Glóus Indíanos ;)

2 comments:

Anonymous said...

Mikið er nú gaman að þú skemmtir þér vel í vinnunni. Þú og Arna systir þín eruð reyndar þeim hæfileikum gæddar að finnast mjög margt fyndið sem engum öðrum finnst fyndið og þá getið þið skellihlegið og það lengi.
Skemmtu þér vel í þessu "Seli" eitthvað og mundu bara að taka flottu gönguskóna með. LU. Mamma

Erling.... said...

Hláturmild að vanda.....:0)