Monday, September 27, 2004

Mánudagur...

Ég elska mánudaga! Flestir þola ekki mánudaga, því þá er yfirleitt langt í helgina, og allir elska helgar, þar með talið ég, en á mánudögum, fæ ég engar vörur í vinnunni og þetta verður svona dúllerí dagur þar sem ég er bara að þrífa borðið mitt (allt grænmetisborðið) og allt geggjað ísí! Lítið að gera og svona..Ekki misskilja, ég elska líka þegar mikið er að gera, mar verður e-ð svo important þá.. En eins og dagurinn var í dag, engir leiðinlegir yfirmenn að bögga mig... hmm, reyndar er alveg ótrúlega langt síðan ákveðin manneskja skammaði mig fyrir e-ð sem ég á ekki skilið, ég er líka búin að vera x-tra dugleg síðan í talningunni um daginn en þá vann ég í 18 klukkutíma og hef varla stoppað síðan.... Myndi helst vilja vinna 8-20 alla daga og aðra hvora helgi en ég má það bara ekki :( þá bara vinnur maður eins mikið og maður fær og sníkir svo aðeins meiri aukavinnu ;) Mar er snjall.. Hehe! Helsti ókosturinn við að hafa lítið að gera er að tíminn líður svooo hægt en samt var þessi dagur sokkalega fljótur að líða.... Er núna á eftir að fara að klára að flytja, á eftir að flytja skattholið, skrifborðið, skenkinn og rúmið, jú og hrikalega flotta hjólið mitt ;) Hlakka svo til að vera búin að selja bílinn og fara labba útum allan bæ! Dúða mig brjálað upp með flotta sjalið mitt ;) og svo má ekki gleyma tónlistinni sem ég ætla alltaf að hlusta á! Þetta á eftir að verða snilldarvetur, og ég spara og spara... Snilld.is x 1800 :) Íbúð? Afríka? Skóli? Húsgagnasmiður? Alltof margt sem mig langar... Erfitt að ákveða hvað skal gjöra í framtíðinni þegar ég verð búin að safna mér böns af pening! En jæja smá skoðanakönnun... Bingó með vinnunni eða unglingasamkoma á laugardaginn???? Langar bæði.... Eigið masssssa skemmtilegt kvöld! Mitt verður sveipað flutningum og kannski smá TV, Dont know... Until next time.... BYE honeys :) Glóulínus ;)

3 comments:

Anonymous said...

Hæ beib, Bingó með vinnunni:=) Finnst mér sko;);)

Anonymous said...

"Mér" er sko ég Arna systir þín;);) Hehe og haha, gleymdi sko að kvitta fyrir kommentið mitt:-þ

Anonymous said...

Ég held að ég segi bingó með vinnunni, þ.e. ef þú fílar vinnufélagana. Það bætir alltaf starfsandann að gera eitthvað skemmtilegt saman. Svo er unglingasamkoma um hverja helgi en ég geri ráð fyrir að bingóið sé ekki um hverja helgi ;)
Skemmtu þér massa vel ;)
Þín systir
Íris E