Sunday, December 30, 2007
Komin norður :)
En jólin :) Æðisleg út í gegn! Við fórum austur á aðfangadag e-ð um 3 leytið og þar er alltaf svo notalegt! Jólamaturinn var auðvitað snilld í gegn en hún Danía Rut sætabaun vildi brauð takk :) Svo sæt :) Ég fékk svo möndluna annað árið í röð! Bjóst alls ekki við því þar sem ég er alls ekki sú heppnasta í fjölskyldunni ;) En þarna var ég sko heppin, finnst svo gaman að fá möndluna og ég sá glitta í hana eiginlega strax en lét nú alla klára úr skálinni áður en ég uppljóstraði að ég hefði verið sú heppna ;) Ég fékk líka aukapakka (möndlugjöfina) og í honum var Monopoly :) Geggjað flott spil! En ég fékk líka alveg helling af pökkum og þar á meðal var náttbuxur, jólasyrpa, jólaóróinn 2007 frá Georg Jensen og þríkrossinn en þetta fékk ég allt frá Bjössa mínum :):) Ekkert smá flott :) Frá pabba og mömmu fengum við rosalega flottar svuntur af því við erum svo húsleg (mömmu orð) og roosalega flotta gamaldags rauða vigt, svona eldhúsvigt, góð í baksturinn! Frá tengdamömmu fengum við ýmislegt :) Púða sem smellpassar á rúmið, 2 kókglös, hana til að hafa í eldhúsinu, 2 hjörtu til að hengja á vegg, og fleira. Allt mjög flott!! Frá tengdapbba fékk Bjössi einn íslenskan jólasvein og ég öðruvísi mjög sætan jólasvein, og svo 15.000 kr gjafabréf í Búsáhöld þar sem sparistellið okkar fæst :):):):) Geggjað barasta!!! Fengum svo alveg helling í viðbót sem ég tel ekki upp hér nema ég VERÐ að segja ykkur frá gjöfinni til mín frá henni Írisi :) Ég fór að skæla þegar ég tók hana upp! Fyrst sá ég bara albúm og var svolítið hissa hvað Íris var spennt að gefa mér albúm! En hún var búin að fylla albúmið af myndum úr gæsuninni minni og skrifa texta með og mér þótti svo vænt um þetta að ég felldi nokkur alvöru tár :) Oh þetta gladdi mig alveg gommu!
Á jóladag hittumst við öll stórfjölskyldan í Húsinu við Ána og það var notalegt sem endranær! Borðuðum þar saman hangiket og með því og meðlætið var nú ekki af verri endanum, Bjössi sauð niður rauðkál sem var lystagott og allir sammála um ágæti þess :):)
En jæja takkarnir á tölvunni eru að stríða mér og við erum að fara aðeins að versla þá ætla ég aðeins að hætta!
Erum komin norður og dveljum hér í góðu yfirlæti hjá tengdapabba :) Fer mjög vel um okkur og áramótin verða örugglega bara æðisleg, en þetta verður í fyrsta skipti á ævinni sem ég er ekki með fjölskyldunni minni yfir áramótin! En einhvern tímann er allt fyrst! Og það var eins gott að við keyrðum í gær því að það er allt kolófært í dag!
En eigið gleðileg og slysalaus áramót og Guð veri með ykkur :)
Eygló
Monday, December 24, 2007
Gleðileg jól :)
Sunday, December 16, 2007
Kertaljós og rómantík :)
Erling Elí og Júlía Guðrún Linnéa sætu frændsystkinin :)
Á föstudagskvöldið var hið árlega út að borða hjá skvísunum í mömmu fjölskyldu :) S.s amma og dætur og tengdadætur og dætur og tengdadætur dætranna :) Svo koma líka Sissa og Alís og það var mjööög gaman hjá okkur! Við skiptumst alltaf á pökkum og það gerir kvöldið enn gleðilegra, því að þeir sem mig þekkja vita hvað mér finnst gaman að fá pakka :):) Ég fékk rosalega sæt kerti og reykelsiskubba og lítinn konfektkassa og Kata skvís gaf þá gjöf :) V ið fórum á Grand hótel og það var mjög flott hjá þeim jólahlaðborðið, eina sem mér fannst asnalegt að þegar maður fékk sér hangiketið var sósan og kartöflurnar á öðrum stað og varð maður hálf að troðast til að fá sér (eða fara í aðra langa röð til að fá sósu) Svo voru jú raðirnar frekar mikið langar en þær voru fljótar að "líða" eða hvað segir maður? Svo sungu Bryndís og Sigga Bein jólalögin fyrir okkur og þær voru BARA góðar! Fólk fór á dansgólfið og það fór misvel með fólk....
Í gær hinsvegar vorum við Bjössi með jólaboð fyrir fjölskylduna mína! Pabbi og mamma komu og Hrund og Arna og svo Íris með sína fjölskyldu :) Stelpurnar hennar Örnu eru hjá pabba sínum en annars vorum við öll! Við vorum búin að baka eitthvað af smákökum og gerðum svo heitt súkklulaði með smá hjálp frá pabba og mömmu ;) Erum enn að læra þetta sko :):) Þetta var virkilega notaleg stund og gaman að njóta þess að hittast og eiga tíma saman á aðventunni! Við erum líka alveg einstaklega samheldin fjölskylda og þykir mér mjög vænt um það :) Enda eigum við systurnar bestu og þá meina ég þá langbestu foreldra sem fyrirfinnast :) Elska ykkur í bunkum :):) Þið eruð algjörlega æðisleg bara!Ég ætlaði að henda inn helling af myndum en hver mynd er að hlaðast inn á 10-12 mínútum svo að ég nenni ekki að setja fleiri inn! Við erum svo á leiðinni í afmæli hjá Katrínu Töru á eftir, en hún varð 3ja ára 3.des! Verð að setja inn mynd af henni síðan í gær..
Katrín Tara litla skvís sofnaði hjá pabba sínum :) Svo sæt!
Læt þetta duga í bili!
Besta jólakveðja í heimi
Eygló ~ 8 dagar til jóla
Tuesday, December 04, 2007
20 dagar til jólanna :)
Ég að blanda deigið, búin að kaupa mér rúgbrauðsdeigsbala :)
Brauðið tilbúið eftir 16 klukkutíma af bakstri :) glæsilegt er það ekki??
Ég bakaði líka loftkökur í dag og gerði deig fyrir spesíur en þær verða bakaðar aðeins seinna.. Arna kom svo með stelpurnar og ég leyfði þeim að baka piparkökur úr rest af piparkökudeigi af opnu húsi í leikskólanum :) Þeim fannst það alveg ægilega gaman, ég gerði líka stafina þeirra úr loftkökudeigi og það fannst þeim ekkert smá sport :) Ég á svo eftir að gera stafi Petru Rutar og Katrínar Töru en þær koma bráðum í heimsókn og þá fá þær líka :) gaman að því bara! Dagurinn í dag er sem sagt búinn að vera bökunardagur með meiru :)
Svo varð ég bara að setja inn þessa sætu mynd af Þóreyju Erlu:
Þórey Erla yndigull :)
Tekur alveg ógnartíma að setja inn myndir svo að ég ætla að láta þessar nægja í bili..
Ætla til ömmu annað kvöld og klára að prjóna fyrir Snúllu í vinnunni :) Það er alltaf svo notalegt að koma til ömmu, hún er svo mikið gull :) Svo er samkoma á fimmtudaginn í Samhjálp og svo jólamatur fyrir starfsmenn í vinnunni á föstudag :) Er einmitt að fara á morgun og kaupa mér jólaskó, er búin að sjá eina geðveikt flotta sem ég er svolítið skotin í :)
Lífið er æði :D ~ njótum þess
Eygló jólastelpa - 20 dagar :):)