Monday, July 21, 2008

MJÖG skemmtileg helgi að baki :)

Við fórum um helgina ég, Bjössi, Arna, Hrund, Íris, Karlott, Petra Rut, Katrín Tara og Erling Elí á Fitina :) Það var löngu planað að fara í systraútilegu og við hefðum ekki getað verið heppnari með veður! Á laugardeginum var svoleiðis glampandi sól og mig minnir að það hafi verið 21° í skugga!!! Alveg magnað.. Enda "sendum" við kallana með börnin í sund og lágum svo systurnar og flatmöguðum í sólbaði, tvær saman á vindsængum :) Íris og Karlott í tjaldvagnapartýinu á föstudagskvöldinu!

Arna að frjósa og Hrund sætar saman :)
Ég var með :)

Karlott og Bjössi!!
Íris stökk út og setti upp þennan risa stiga til að ná flottum myndum af himninum sem var mjöög svo fallegur þetta kvöld :)
Eins og þið sjáið á þessari mynd :):)
Hrund og Arna sætar í sólbaði :):)
Petra Rut sæt með swiss miss í bollanum sínum! Alveg í stíl við fötin!
Og Katrín Tara líka með bolla í stíl við fötin! Alger pæja!
Erling Elí að leika sér með pottana :)Bjössi í afslöppun :)

Við nutum helgarinnar alveg í botn og það er svo notalegt að koma þarna á landið þeirra pabba og mömmu :) Við njótum þeirra forréttinda að fá að nota þennan æðislega stað með þeim og er það alveg æðislegt! Virkilega æðislegt :)

Á sunnudeginum var ekki alveg eins mikil sól svo að við ákváðum að pakka um 1 leytið og kíkja inní Þorsteinslund.. Fallegt að skoða þar og hér koma nokkrar myndir þaðan :)

Ég að stelast í bláberin áður en við lögðum í hann...

Við Arna við hliðið inní garðinn..
SÆTU mæðgur.. Katrín Tara og Erling Elí sváfu í bílnum!
Sjálfsmynd.. Að deyja úr frjókornaofnæmi :$

Hvar er Íris???? Hehe....

Á leiðinni heim stoppuðum við hjá pabba og mömmu - það er ekki annað hægt! Tilheyrir að kíkja á þau á leiðinni heim :) Þar var auðvitað vel tekið á móti okkur öllum, borðuðum saman og lokuðum helginni þannig :) Fullkomið :)

Langar að enda á að óska henni Theu og fjölskyldu innilega til hamingju með gullfallega Theodór Ísak sem fæddist á laugardagsmorguninn :) Það var svo fyndið að ég vaknaði við gleðiöskur í Örnu þann morgun og ég alveg um leið og ég heyrði það " Thea er greinilega búin að eiga" hehe.. Arna alltaf með jafn skemmtileg viðbrögð :)

En jæja ég held ég láti þetta gott heita í bili.. Krílið hefur það alveg meiriháttar gott og það er aldeilis farið að styttast í komu þessu :) En við bíðum bara róleg og þolinmóð :)

Þar til næst.. Eyglóin

5 comments:

Anonymous said...

Hey, skemmtilegt blogg hjá þér sæta mín. Þetta var nátturúlega snilldar helgi, vantaði bara gullin mín... Gaman líka að sjá allar myndirnar:) Sjáumst hressar næst:) Arnan

Anonymous said...

er Íris þarna lengst uppi?

Maður sér bara bleiku buxurnar hehe:D

Annars SKEMMTILEGT blogg hjá þér kona góð:)

-Hrund sys

Erla said...

Skemmtileg lesning og frábærar myndir, veit líka að Hrund var mjög ánægð með að þið komuð við þar sem hún þurfti að fara í vinnuna á laugardeginum. Hlakka mikið til að sjá krílið þegar það kemur í heiminn. Elska ykkur og við sjáumst sem fyrst. Mamman

Íris said...

Þetta var svo mikil snilld þessi helgi. Og ekki var leiðinlegt að enda hana á Þorsteinslundi, hehe :)
Svo er nú vikan heldur ekki búin að vera leiðinleg, haha, verðum að taka Laugarveginn fljótlega.... eða ekki :)
Sjáumst á morgun!
kv. Íris

Íris said...

Þú veist að það er kominn september er það ekki???