Thursday, January 25, 2007

Ferðalag...

Mig er farið að langa í ferðalag!

Hlakka til í sumar að fara í útileguR, oh það er svo mikil stemning og svo kósý, gaman að tjalda og hita sér vatn á prímusnum og fá sér heitt swiss miss á köldu sumarkveldi :) Mín bara orðin ljóðræn! Hehe.. Æ það er bara svo skemmtilegt að ferðast og við eigum nú svo fallegt land sem gaman er að skoða :) Verður líka gaman að fara norður í sumar því að það er svo gaman að keyra á milli Akureyrar og Reykjavíkur í fallegu veðri, stoppa svo bílinn og borða nestið í fagurri náttúrunni! Fyrir utan auðvitað að hitta allt liðið okkar fyrir norðan ;)

Ég er búin að vera hálf sloj undanfarna viku, ástæður fyrir því en það fer að fara held ég. Vona það allavega :) ALLT hægt ef viljinn er fyrir hendi ..

Jæja, ég ætla að fara að slétta á mér hrikalega "krullaða og liðaða og ég veit ekki hvað og hvað" hárið.. Átakið gengur barasta ágætlega, 4.dagurinn að enda og ef mig langar í e-ð á kvöldin þá fær ég mér grænmeti.. Sem er rosa ferskt og gott, nema ekki spergilkál, bjakk, :Þ Þyrfti að vera duglegri að drekka vatn en ég drekk eiginlega bara rauðan kristal + ... Mmm

Verið öll blessuð :)

Ykkar Eygló minnkandi ;)

4 comments:

Íris said...

Gott hjá þér að vera svona dugleg. Hlakka til að sjá töluna fara niður á mánudaginn ;)
Farðu vel með þig!
Your big sys ;)

Anonymous said...

sloj... ertu ólett Eygló mín :)
það væri nú ekkert smá yndilsegt :)

Anonymous said...

Finnst þetta frábært átak hjá þér, snúlla! ..mundu samt.. kristall + er bara örlítið "hollari" og sykurminni en kók.. :( sorglegt, finnt þér ekki? :(

love,
svansa

Eygló said...

Jú ég er ólétt Kolla mín og er þess vegna í átkai til þess að verða léttari! Hehe :) En Svansa, nei ég vissi ekki að það væri svona mikill sykur í Kristal +.. Það sökkar ekkert smá! Best að venja sig þá af því og fara í vatnið bara!
Og Íris mín, ég hlakka líka til að færa stikluna :)
Kveðja Eygló