Monday, October 04, 2004

Lasin :(

HÆ... Mín er lasin og það er sko ekki skemmtilegt! Er með 38.8 stiga hita og höfuðverk, svima og fullt.. Ekki gaman, ætlaði þvílíkt að fara í vinnuna í gær og var að fara að slétta á mér hárið þegar ég mundi að mamma hafði sagt mér að mæla mig þar sem ég var búin að vera hálfslöpp, og mín var bara með hita, ekki kannski skrýtið að mér væri búið að vera svona kalt. Þannig að ég ákvað að fara ekki í vinnuna þó svo að mig hafi langað, hefði ekki getað gert neitt og það hefði endað á að ég hefði þurft að fara heim.. Fór svo að sofa með ósléttað og ÓGEÐSLEGA krullað hár.. Kafnaði næstum úr hita í nótt, fór fram úr um 8, hringdi í Einar yfirmann minn og tilkynnti honum að ég væri veik, hringdi svo í heilsuvernd til að fá daginn borgaðan, þetta er 4. dagurinn sem ég er lasin síðan ég byrjaði í Hagkaup en ég er búin að vinna þar í 13 mánuði. Fékk mér eina pizzusneið (viðArna pöntunðum okkur Domino´s pizzu í gær) fór svo og lagði mig kl hálf 10, var að frjósa og sótti mér aðra sæng og hlýnaði aðeins, Arna kom til mín um 2 með aðra pizzusneið og Pepsi max í glasi (en ekki hverju? döh) Fór svo fljótlega fram, orðin dauðleið á að liggja uppí rúmi! Arna ótrúlega góð að dekra við mig :) Arna þú ert ÆÐI ;) Er núna að bíða eftir að Arna komi heim úr Bónus, hún ætlaði að kaupa swiss miss til að mér fari að hlýna... Vona ég geti farið í vinnu á morgun en efast reyndar um það.. Hafið það gott krúttin mín... Ykkar lasarusarína!

6 comments:

Anonymous said...

Vonandi batnar þér sem fyrst. Það er svo hundleiðinlegt að vera veikur!!!
Batnaðarkveðjur
Íris E, Your sis ;)

Anonymous said...

Það er ekki gott á þig að vera lasin gullið mitt.
Farðu vel með þig og láttu þér batna vel áður en þú
ferð aftur í vinnuna. Heppin ertu að hafa Örnu hjá þér.
LU. Mamma

Anonymous said...

Þetta er ekki gott á þig:/ en þér batnar. Það er eins gott að eiga svona góða systir eins og við eigum, til að láta dekra við sig (vantaði þig ekki pabba til að gera pulsu?? :P )
En allavega, við heyrumst sæta lasarusína!
þín systir sem getur ekki talað, Hrund Erl.¨!

Erling.... said...

Litla skinnið. Ég skal gera pulsu svo þér líði betur :-)
LU Pabbi

Anonymous said...

OHHH, ég vona alveg innilega að þér fari að batna elsku dúllan mín. Guð geymi þig ALLTAF!! Þín systa Arna

Anonymous said...

Er þér ekkert að batna??? :(
Vonandi fer þetta að koma hjá þér. Þetta er alveg ógeðsleg veiki :(
Farðu vel með þig.
Þín systir
Íris E