Saturday, October 16, 2004

Mér DREPLEIÐIST!!

Hvað á maður að gera þegar manni leiðist? Maður er einn heima hundlasinn og ekkert í sjónvarpinu og ekkert bókstaflega hægt að gera? Ég var geðveikt bjartsýn í gær að mér væri nú aðeins að batna og var bara mjög ánægð með það.. Nei nei vaknaði með hrúgu hálsbólgu og það er eins og ég sé með kartöflu í hálsinum þegar ég tala.. Ég er orðin "nett" pirruð á að vera lasin, finnst þetta sko komið nóg! Það er ekkert leiðinlegra en að hanga inni allan liðlangan daginn og allt svo eins! Hef núna ekkert farið út í heila viku! Bara þrisvar á 2 vikum! Ég bara bíð spennt eftir að batna.. Ég fer í blóðprufu á mánudaginn til að tékka á lifrinni og miltanu, hvort það sé að minnka bólgan.. Arna og Davíð fóru í sveitina og ég er að pæla hvort ég eigi að panta mér pizzu í kvöldmatinn, en það er eiginlega sóun því ég mun örugglega borða lítið, hef ekki mikla matarlyst, er búin að borða eina skál af kellogs í dag og ís. Hef meira að segja drukkið ótrúlega lítið pepsi max undanfarið og þá hlýtur Glói að vera veikur! jæja ég ætla að fara að gera e-ð... Kannski finn ég einhverja bók til að lesa eða fer að pússla.. Eigið öll ánægjulegan dag og helgi.. Ykkar uppáhalds Eygló

3 comments:

Anonymous said...

Ég vorkenni þér alveg helling. Þetta hlýtur að vera alveg ömurlega leiðinlegt. En það er nú samt ekki leiðinlegt að púsla er það??? ;) Farðu nú að segja þessum líkama þínum að láta sér batna svo þér fari að líða betur. Hlakka til að hitta þig eftir 2 vikur ;)
Þín systir
Íris

Anonymous said...

heyr, heyr, sammála systir!!!

Anonymous said...

Gerðu bara eins og Hrund systir.... hún bara sagði veikinni upp svo hún hlýtur að fara fljótt;) Smá djókur...fannst þetta bara svo fyndið hjá henni Hrund:):) En gott hjá þér að fá þér pizzu og NJÓTA hennar í botn. Vona að þér fari nú að batna elsku rúsínurassinn minn:):) Sjáumst eftir 1 sekúntu;) Þín Arna