Sunday, November 25, 2007

You only live once :)

Helgin búin að vera meiriháttar :)

Á föstudaginn hittumst við heima hjá Örnu og við pöntuðum pizzu saman.. Arna fór svo á samkomu með Hrund og við Bjössi pössuðum fyrir hana á meðan :) Ég ætlaði ekki að trúa því að það væri komin helgi en jújú.. Var reyndar heima mánudag til miðvikudags í síðustu viku, var með svo hryllilega mikið kvef og fékk líka hita.. Bjakk.. En svona er þetta nú, tíminn flýgur og gaman að segja frá því að það eru 29 dagar til jóla :):):):)

Við fórum svo í afmæli í gær til Hrafnhildar og Ágústar.. Þetta var líka innflutningspartý og var mjöög gaman að sjá húsið þeirra en það er mjööög flott og á 3 hæðum! Við gátum reyndar stoppað fremur stutt þar sem við komumst af því að kótilettukvöldið í Samhjálp byrjaði kl 19 en ekki 20 eins og við héldum!!! hehe.. En við komumst nú á réttum tíma þó..

Það var mjög gaman að fara á kótilettukvöldið en okkur var boðið af Valda og erum við honum mjög þakklát fyrir :) Takk fyrir okkur! Það var happdrætti og svo var bögglauppboð :) Ég var nú að dást að þeim sem gátu boðið 30 þúsund og fannst þeir svaka ríkir! Nema hvað, síðasta pakkann vildi ég!! Ég varð bara :) Það var sem sagt pakki og svo fylgdi málverk með ef einhver byði 70 þús!! Tek það fram að mér fannst málverkið MJÖÖG fallegt og ég var búin að heyra að einhver Magnús hefði málað það en ég átti nú engan pening svo að ég hugsaði það ekki lengra - - - þangað til ég heyrði að Magnús Guðnason hefði málað það 1987!!!!! Þeir sem ekki þekkja mig það vel til að vita en þá var hann afi minn og listagóður málari :) Ég átti 2 málverk fyrir eftir hann og ég gat bara ekki hugsað mér að þetta fallega málverk myndi enda bara einhvers staðar! Það endaði þannig að við buðum 85 þúsund og það var slegið okkur :):):):) Ég var eiginlega í geðshræringu eftir þetta því að það er mér svoo dýrmætt að eiga þetta málverk, ekki nóg með að afi málaði það heldur er þetta mjög kristilegt málverk þar sem fólk gengur að vatni til að láta niðurdýfast :) Fæ bara gæsahúð við að skrifa þetta!! Ég tók mynd af málverkinu til að leyfa ykkur að sjá!


Allir að segja mér hvað þeim finnst! Ég veit að 85þúsund er svolítið mikill peningur en það er ekki á hverjum degi sem málverk eftir afa er í boði og ég bara stóðst ekki mátið :) Og maður lifir nú bara einu sinni!!!! :) Ég er allavega HÆSTánægð með þetta og svo ætla ég að bara að óska mér pening í afmælisgjöf þegar þar að kemur og það fer upp í myndina.. Því að mig vantar svo sem ekki neitt :) Gleði gleði gleði!


Eygló jólabarn með meiru :):):):)

8 comments:

Erling.... said...

Ég man ekki eftir þessari mynd. Ekkert að marka það því auðvitað sá ég ekki allar myndirnar hans.
Hún er mjög falleg og gott að þú sást um að hún færi ekki út úr fjölskyldunni.
Afa þínum hefði þótt vænt um að vita að barnabarnið hans legði á sig erfiði til að eignast þessa mynd.
Til hamingju með hana....
LU þinn Pabbi

Hrafnhildur said...

Sæl sæta frænka og takk kærlega fyrir okkur.
Vááá... til hamingju með málverkið! Og ég er sko hjartanlega sammála þér að þetta málverk Á! að vera í fjölskyldunni og ég hefði líka keypt það fyrir þennan pening, í mínum augum er það ómetanlegt. Þú hefðir hugsað um það alla ævi og séð eftir því ef þú hefðir ekki keypt það. Ég samgleðst ykkur af öllu hjarta.
Kveðja úr Mos

Hafrún Ósk said...

Til hamingju með málverkið... Frábær mynd og æðislegt að þú skyldir eignast hana.
Ég fann einu sinni málverk eftir mömmu í Kolaportinu og fékk einmitt þessa tilfinningu "Enginn annar má eignast hana". Mamma var með mér og var alveg sama og ætlaði bara að fara svo ég keypti hana... Ekki reyndar á nema 2000 kr. :) en mér þykir jafnvænt um hana fyrir það...
Svo myndi ég bara fara að skreyta ef ég væri þú :)

Anonymous said...

Innilega til hamingju með málverkið og mikið skil ég þig vel að hafa skellt þér á það.
Hann afi þinn væri sko vel ánægður með að að skyldi komast í þína eigu.
MBKV Gerða

Anonymous said...

Innilega til hamingju með þetta geggjaða málverk. GOTT hjá ykkur að bjóða í það og fá það. Það er alveg ómetanlegt að eiga málverk eftir afa. Elska þig milljón mikið. Uppáhalds Arna þín:)

Anonymous said...

Þetta er mjög flott mynd og ég skil vel að þú hafir ekki staðist það. Gott að Bjössi var líka til í þetta. Njóttu svo aðventunnar gullið mitt, það er svo skemmtilegur tími. Mér finnst svo gaman að lesa bloggið þitt því það skín svo í gegn hvað þú ert hamingjusöm. Elska ykkur og er stolt af ykkur. Hlakka til að koma í smákökuboðið.... Mamman

Anonymous said...

85 þús er ekki neitt verð fyrir þessa mynd kæra frænka. Njóttu hennar og allra yndislegu minninganna sem þú átt um afa þinn. Hann var merkur maður sem vert er að minnast. Kær kveðja.
Teddi.

Anonymous said...

Ég persónulega hefði aldrei borgað krónu meira en 84955 fyrir þessa mynd. Æ ég meina aldrei krónu meira en milljón fyrir þessa mynd.

Smá grín, en innilega til hamingju með þetta allt. Kiddi Klettur