Wednesday, January 26, 2005

Búhú...

Það er búið að selja Bjarmastíginn :( Gedt leiðinlegt, var brjálað kósý íbúð og í húsi en ekki í blokk... EN þá er bara að finna einhverja aðra... Mest úrval af blokkaríbúðum sem eru of hátt verðsettar miðað við útlit! Annars er ógeðslega gott að frétta af mér! Ég fer í ræktina 4x í viku og það er æðislega gaman, fór í gær og lyfti og hljóp 1 km.. fór í vigtun á mánudaginn og 1/2 kg var komið aftur! Ég var ekki sátt enda búin að borða hollt og passa mig, en þetta er auðvitað bara vöðvaMASSINN!!! Nei nei við sjáum til í næstu vigtun! Æ það er alltof lítið að frétta.. En ég hef það betra en gott og það hljóta að vera góðar fréttir! Njótið lífsins og zorry leiðinlegan pistil.. Ykkar Eygló spriklgella... ;)

4 comments:

Anonymous said...

Leiðinlegt að það sé búið að selja íbúðina! En þetta segir manni að maður þarf svoldið að flýta sér að ákveða sig því góðar íbúðir fara strax nú á dögum.
En gangi þér rosalega vel í íbúðaleitinni. Hlakka ekkert lítið til að kíkja í heimsókn til þín þegar þú ert búin að kaupa og koma þér fyrir!!!
Svo er ég viss um að þetta er bara massi sem er búinn að bætast á þig en ekki fita ;)
Þú ert hörkudugleg að geta þetta. Ég er amk ekki að standa mig :(
Jæja, við sjáumst nú í febrúar!! Hlakka til ;)
Þín elsta systir
Íris E

Erling.... said...

Nóg er til af íbúðum. Svo er Þetta ekki leiðinlegur pistill. Það verður gaman að sjá fyrstu íbúðina þína, hlakka til. LU þinn Pabbi

Anonymous said...

Hæhæ
Jóna María hérna.... ógeðslega langt síðan ég hef séð þig.... þú finnur eflaust einhverjar ferlega kósý íbúð ég efast ekkert um það
ég er líka byrjuð með blogg :) geggjað gaman sko .... hmm það á alveg eftir að koma í ljós hversu duglegur maður verður nú að skrifa en slóðin er blog.central.is/warning_sign
tjekk it out :)

Anonymous said...

Að mín mati ertu betur sett í blokk en í gömlu húsi. Það er svo dýrt að viðhalda gömlum húsum. Been there - done that. Eitt af því góða sem ég sé við að búa sjálfur í blokk í dag er að þurfa ekki að hafa áhyggjur af þessum þáttum. Svo innréttar maður bara sína blokkaríbúð eins og manni dettur í hug sjálfur og gerir þær kósý. Það verður þér auðvelt verkefni. Þú ert svo mikill listamaður. Gangi þér vel með að finna íbúð. k.kv. Teddi.