Thursday, May 24, 2007

Arna...

...kemur heim í kvöld :) Fjúff... hefði aldrei trúað því hvað það er mikil vinna að vera með 3 börn! En fyrr má nú vera sko! Búin að vera með stelpurnar hennar Örnu síðan á mánudaginn og er alveg uppgefin, verð ég að játa, á auðvitað ekki börn sjálf og vön að hafa nægan tíma til að gera allt sem ég þarf og langar til! Ég veit að nú brosa allar mæður út í eitt og skilja alveg hvað ég er að fara :) Ég er allavega búin að fá smá forsmekk af því hvernig er að eiga börn! Hehe!!


Þannig að ég hlakka til að fá Örnu heim á margan hátt, verður alveg æðislegt að sjá hana og allt sem hún hefur verslað og skoða myndir og svona ;) og svo sé ég orðið rúmið mitt alveg í hyllingum! Munar um 120 cm eða 193!!!! Þannig að það verður fínt að vera búin að passa! Búið að vera mjög lærdómsríkt og skemmtilegt í senn! Hehe


Er búin að reyna að setja inn myndir hér með en það tekst ekki hjá mér. Hrmpf... Ég þoli þetta ekki!!!


Jæja ég ætla að fara og finna e-ð skemmtilegt f stelpurnar að gera, svo er pizzupartý í kvöld með þeim, síðasta kvöldið sem við pössum þær..


Hafið það gott :)

2 comments:

Íris said...

Ég ætla ekki að hlæja að þér núna, er búin að hlæja nóg af þér, hehe :D
En njóttu þess að sofa í þínu rúmi í kvöld og sofa í fyrramálið. Sjáumst svo hressar á morgun og vonandi verðuru úthvíld :D
Your sis, Íris

Anonymous said...

Bíddu varstu ekki að passa dætur mínar? Getur ekki verið að þú sért þreitt ;)

Davíð