Friday, July 06, 2007

Ég bara trúi þessu ekki!!

Það var sem í gær sem ég labbaði út úr vinnunni og bauð góða helgi!! Það getur varla verið að það sé kominn aftur föstudagur og komið að því að aftur að bjóða góða helgi!!!! Alveg ótrúlegt hvað tíminn flýgur!!!

Ég er búin að vera voða asnaleg þessa viku, og fékk hita í gær ofan í allt kvefið. Er nú að drepast í hálsinum líka og tungunni! Veit ekki hvað er í gangi!!

Pleh veit ekkert hvað ég ætti að segja ykkur!

5 vinnudagar eftir og þá er komið að 3ja vikna sumarfríi!!! Æði

Farið vel með ykkur og farið varlega um helgina :)

Eyglóin næstum því lasna... Hrmpf

2 comments:

Íris said...

Algjörlega sammála. Tíminn bara flýgur áfram og maður tekur varla eftir þegar hann flýgur framhjá.
Sjáumst á eftir ;)

Anonymous said...

Taktu lýsi elskan. Það er hægt að fá það í hylkjum og ekkert bragð af því , en hefur ÓTRÚLEG áhrif.
Lýsi er gott fyrir öll liðamót, hár og neglur, og svo hefur það fyrirbyggjandi áhrif gegn allskyns umgangspestum.

Ég er EKKI að grínast...mér finnst lýsi svo vont aðég tók það ekki í mörg ár, en svo prófaði ég þessi hylki og það er EKKERT bragð af þeim.

Gangi þér vel dúll og góðan bata.

Sirrý litla frænka þín